Sælt veri fólkið.
Jæja, þá er að koma að leiðarlokum hjá mér sem formaður félagsins. Þessi tími hefur verið hreint ótrúlegur og sennilega hef ég aldrei lært jafn mikið á tveimur árum eins og í þessu sæti. Þegar ég var hvött til þess að bjóða mig fram til formanns, var ég ekki viss um hvort það væri eitthvert vit í því. Hvort sem heldur fyrir félagið eða mig. Ég hafði enga þekkingu á því sem ég var að fara að takast á við. Ég hef þurft að endurskoða margt; hugsun, gjörðir og orð! Þetta er gott félag, góður félagsskapur sem bíður upp á ótal margt og ég hvet ykkur öll til að nýta ykkur sem mest það sem félagið hefur upp á að bjóða. Þó svo að það sé ekki neitt annað en að koma við og þiggja kaffibolla. Það eru svo margir sem ég hef kynnst í gegnum starfið. Margir einstakingar sem ég hef skrifast á við en aldrei hitt og þakka ég ykkur öllum fyrir að hafa gert þessa formannstíð mína ógleymanlega.
Það að sitja og skrifa bréf sem sent er út á netfangalista sem geymir yfir 400 netföng er skrítin tilfinning. Ég man eftir því þegar ég skrifaði fyrsta bréfið þá hugsaði ég: „ Ætli einhver lesi þetta?“ „Skrítið að senda eitthvað frá sér og fá engin viðbrögð!“ „Send“ Ég ákvað að skoða eitthvað meira og fór ekki strax úr tölvunni. Það liðu ekki nema nokkur augnablik og þá kemur svarpóstur og svo fleiri. Vá hvað ég varð hissa og glöð. Þetta hafa verið mismunandi svör frá því að fá bara eitt „Takk“ upp í mjög skemmtilega spjallpósta. Ég kveð með því hugarfari að það hafi verið gott að ég vissi ekki neitt í upphafi. Tel að það hafi gefið mér það svigrúm að fá að vera bara ég sjálf. Þið sem hafið setið í stjórn með mér þakka ég fyrir góðan tíma og gott samstarf. Þó svo að ég fari úr forsvari þá fer ég ekki langt. Ég mun halda áfram að starfa fyrir félagið í þeim störfum sem þarf að vinna að. Kæru félagsmenn og aðrir velunnarar: Megi Guð fylgja ykkur á lífsins braut og vísa ykkur á gæfu stíga.
Bestu kveðjur og takk fyrir mig.
Hulda I
Þá er það dagskráin sem eftir er af starfsárinu.
Starfandi miðlar:
Guðmundur Ing Jónatansson starfar 11 og 12 maí.
Jón Eiríksson starfar 14 maí.
Lára Halla starfar 21-22-23 og 24 maí.
Aðrir viðburðir:
19. maí: Opið hús hjá félaginu frá kl 12:00 – 16:00
Opið hús er kynning á félaginu. starfsemi og miðilsefnum.
Þessi viðburður er notaður til fjáröflunar fyrir félagið og til að gefa miðilsefnum tækifæri á að æfa sig og kynna. Einnig hafa starfandi miðlar rétt félaginu hjálparhönd og tekið þátt í þessum dögum. Er gestum og gangandi gefin kostur á að kaupa kynningar tíma á vægu verði. Hefur það verið mismunandi hvað er í boði en til að nefna eitthvað þá hefur verið í boði miðlun, transmiðlun, tarrotlestur, litlestur, englaspil, bollalestur, dáleiðsla, orkuheilun og heilun
20. maí: Opin bænastund með
Matthíasi Henriksen í salnum kl 20:00
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
24. maí: Aðalafundur félagsins í salnum kl 20:00
Venjuleg aðalfundarstörf.
1. Kosning fundarstjóra sem síðan skipar fundarritara.
2. Skýrsla formanns.
3. Ársreikningar lagðir fram til samþykktar, undirritaðir af tveimur skoðunarmönnum.
4. Kjör formanns
5. Kjör stjórnarmanna.
6. Önnur mál.